Rannsókn kjörbréfs

Mánudaginn 19. október 1998, kl. 15:02:41 (557)

1998-10-19 15:02:41# 123. lþ. 13.1 fundur 67#B rannsókn kjörbréfs#, Forseti ÓE
[prenta uppsett í dálka] 13. fundur, 123. lþ.

[15:02]

Forseti (Ólafur G. Einarsson):

Borist hafa svohljóðandi bréf:

,,Þar sem ég er staddur erlendis og get því ekki um nokkrar vikur sótt þingfundi leyfi ég mér, með vísun til 2. mgr. 53. gr. þingskapa, að óska þess að 2. varaþm. af lista Alþfl. í Reykjavík, Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni, en 1. varaþm. á listanum er forfallaður.

Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.

Magnús Árni Magnússon, 15. þm. Reykv.``

Þá er hér svohljóðandi bréf:

,,Af persónulegum ástæðum sé ég mér ekki fært að taka sæti Magnúsar Árna Magnússonar, 15. þm. Reykv., á næstunni sem 1. varaþm. Alþfl. í Reykjavíkurkjördæmi.

Virðingarfyllst, Hrönn Hrafnsdóttir.``

Að ósk forseta hefur landskjörstjórn komið saman og gefið út kjörbréf handa Þórunni H. Sveinbjörnsdóttur sem nú er 2. varamaður á lista Alþfl. í Reykjavík. Jafnframt hélt kjörbréfanefnd fund áður en þingfundur hófst til þess að fjalla um kjörbréfið.