Lífsýnasöfn

Fimmtudaginn 22. október 1998, kl. 18:09:57 (677)

1998-10-22 18:09:57# 123. lþ. 16.5 fundur 121. mál: #A lífsýnasöfn# frv., HG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 16. fundur, 123. lþ.

[18:09]

Hjörleifur Guttormsson (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég tel þennan efa í huga hv. þm. jákvæðan, betra en ef svar hefði fallið hér á þann veg að þingmaðurinn teldi eðlilegt að selja aðgang að sýnunum. En ég fékk ekkert svar við upplýsingunum og sölu upplýsinga sem unnar væru á grundvelli sýnanna sem væru þó á sínum stað í lífsýnasafninu. Ef upplýsingarnar væru komnar inn í tölvubanka, er þingmaðurinn þeirrar skoðunar að eðlilegt sé að selja slíkar upplýsingar?