Breyting á stjórnsýslu lögreglustjóraembættisins

Mánudaginn 02. nóvember 1998, kl. 15:12:18 (717)

1998-11-02 15:12:18# 123. lþ. 17.2 fundur 78#B breyting á stjórnsýslu lögreglustjóraembættisins# (óundirbúin fsp.), forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 17. fundur, 123. lþ.

[15:12]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Ég hef ekki séð þessar tillögur sem hafa verið kynntar í fjölmiðlum. Þær hafa ekki verið ræddar í ríkisstjórn. Ég get eingöngu sagt að eins og ég skildi þær tillögur var þar um að ræða skipurit sem ráðgjafarstofa hafði unnið fyrir ráðuneyti dómsmála. Það liggur alveg í augum uppi að ef það er svo að skipurit stangist á við lög þá gilda lög en ekki skipurit.