Sveitarstjórnarlög

Þriðjudaginn 03. nóvember 1998, kl. 14:01:38 (777)

1998-11-03 14:01:38# 123. lþ. 18.7 fundur 42. mál: #A sveitarstjórnarlög# (staðfesting bráðabirgðalaga) frv., GGuðbj
[prenta uppsett í dálka] 18. fundur, 123. lþ.

[14:01]

Guðný Guðbjörnsdóttir:

Herra forseti. Sú sem hér stendur á sæti í félmn. en átti það reyndar ekki á síðasta þingi. Af sömu ástæðu og fram kom hjá hv. þm. Rannveigu Guðmundsdóttur skrifa ég ekki undir það nál. sem hér er til umræðu og þingflokkur Kvennalistans mun sitja hjá við afgreiðslu þessa máls á sama hátt og við gerðum í vor. Við vorum efnislega algerlega ósammála þeim ákvæðum er varða hálendið í því frv. og teljum það fyrst og fremst vera á ábyrgð stjórnarmeirihlutans að gildistakan klúðraðist þar að auki. Þess vegna munum við sitja hjá við afgreiðslu þessa máls nú.