Skattfrádráttur meðlagsgreiðenda

Þriðjudaginn 03. nóvember 1998, kl. 17:50:02 (815)

1998-11-03 17:50:02# 123. lþ. 18.14 fundur 120. mál: #A skattfrádráttur meðlagsgreiðenda# þál., Flm. ÓÖH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 18. fundur, 123. lþ.

[17:50]

Flm. (Ólafur Örn Haraldsson) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef ekki tölulegar upplýsingar um það sem hv. þm. biður um og tel óábyrgt að fullyrða um of hvað það varðar. Innheimtustofnun sveitarfélaga hefur verið að fikra sig af stað eftir þeim lögum sem hér voru sett hvað þetta varðar og eins hafa meðlagsgreiðendur verið að fá upplýsingar um þessa möguleika og átta sig á þeim möguleikum sem þeir hafa. Ég treysti mér ekki til þess að leggja fram staðhæfingar um þetta án þess að hafa tölur sem ég get stutt mál mitt með.