Skyldutrygging lífeyrisréttinda

Þriðjudaginn 03. nóvember 1998, kl. 19:12:01 (830)

1998-11-03 19:12:01# 123. lþ. 18.16 fundur 172. mál: #A skyldutrygging lífeyrisréttinda# frv., GHall (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 18. fundur, 123. lþ.

[19:12]

Guðmundur Hallvarðsson (andsvar):

Herra forseti. Mér blandast enginn hugur um það sem margir hafa þó lent í villigötum með, að 4% væru eign sjóðfélagans en 6% væru á einhverju gráu svæði. Mér blandast enginn hugur um það að lífeyrissjóðirnir eru eign sjóðfélaganna. Lífeyrissjóðirnir eru eign sjóðfélaganna vegna samtryggingarinnar sem þar kemur fram. Þess vegna eru þetta sameignarsjóðir en ekki séreignarsjóðir.