Rannsóknarhús við Háskólann á Akureyri

Miðvikudaginn 04. nóvember 1998, kl. 15:20:52 (869)

1998-11-04 15:20:52# 123. lþ. 20.2 fundur 132. mál: #A rannsóknarhús við Háskólann á Akureyri# fsp. (til munnl.) frá menntmrh., HjálmJ
[prenta uppsett í dálka] 20. fundur, 123. lþ.

[15:20]

Hjálmar Jónsson:

Herra forseti. Ég þakka hv. fyrirspyrjanda, Steingrími J. Sigfússyni, og þeim félögum fyrir að vekja máls á þessu. Fyrirsvarsmenn Háskólans á Akureyri voru hjá okkur í fjárln. í morgun og voru að skýra þetta mál fyrir okkur og lýstu einmitt áhuga bæjarins á því að koma þarna sterklega inn í málið. Það er fullur skilningur á því í hv. fjárln. en það mundi engu spilla þó að bæjarstjórinn eða einhverjir af hálfu Akureyrarbæjar mundi láta svo lítið að koma til okkar í hv. fjárln. og ræða málin.