Guðmundur Árni Stefánsson (andsvar):
Virðulegi forseti. Hæstv. utanrrh. segist ekki stunda þrætubókarlist eða vera með útúrsnúninga og hann vilji reyna að skilja. Ég hef miklar efasemdir um það því að skýrara getur þetta ekki orðið. Alþfl. hefur það ekki á stefnuskrá sinni að ganga úr NATO. Er það skýrt? Skilur hæstv. forseti þá setningu? (Utanrrh.: Ég skil hana.) Alþfl. telur það ekki markmið út af fyrir sig að Ísland verði um aldur og ævi í hernaðarbandalögum. Er það skýrt, virðulegi forseti? Kemur hæstv. utanrrh. e.t.v. til með að skilja hana? (Utanrrh.: Það stendur ekki þar.) Alþfl. telur það ekki sérstakt markmið fyrir fólkið í þessu landi að byggja öryggi í varnarmálum og utanríkismálum á gagnkvæmri fælni vegna gereyðingarvopna. Virðulegi forseti. Skilur hæstv. utanrrh. þessa setningu?
Virðulegi forseti. Ég get auðvitað farið með þetta orð fyrir orð og setningu fyrir setningu. Ég veit að hæstv. utanrrh. hefur greind til þess að skilja það sem hann vill en í þessu tilfelli hygg ég að annað eigi við en sá vilji.
Þetta er eins skýrt og verið getur og augljóst hvað hér er á ferðinni. Það er hræðsla, nagandi ótti við að nú týni þeir af sér spjörunum, framsóknarmenn og aðrir stjórnarliðar í komandi kosningum. Þegar stefnir í að ný, öflug og vösk sveit samfylkingarmanna og kvenna muni koma og sjá og sigra þá á að grípa í gamalkunnu ráðin: Úlfur, úlfur; Ísland úr NATO, herinn burt; kommarnir komnir, Rússarnir eru á næstu grösum. Þetta er fyrir neðan virðingu hæstv. utanrrh. og annarra stjórnarliða. Ég hélt að það væri umræða gærdagsins eða fyrradags, virðulegi forseti. Ætla menn aldrei að læra?