Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál

Fimmtudaginn 05. nóvember 1998, kl. 15:57:52 (972)

1998-11-05 15:57:52# 123. lþ. 21.3 fundur 92#B skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál# (munnl. skýrsla), SighB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 21. fundur, 123. lþ.

[15:57]

Sighvatur Björgvinsson (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er ekki að biðjast vægðar. Ég var bara að segja að sú ákvörðun hv. þm. Steingríms J. Sigfússonar og félaga hans að segja skilið við sinn gamla flokk vegna ákvörðunar sem tekin var á landsfundi með yfir 70% atkvæða, er út af fyrir sig þeirra. En ég ætla ekki að fara að deila við hv. þm. um rökin þar að baki.