Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Það verður nú væntanlega háð viðhorfum manna hér eftir sem hingað til hvort menn verða jafnstoltir af framtíð Alþfl. eins og menn eru af fortíð hans. Líklega verður sú hin sama framtíð ein fær um að leiða það í ljós.
Ég þakka hæstv. utanrrh. fyrir hans orð um samspil sjávarútvegsmála og umhverfis. Þau skýrðu málið fyrir mér og ég tek það svo og veit reyndar að það er ekki djúpstæður ágreiningur á ferðinni þar á milli mín og hæstv. utanrrh. Eftir stendur að ég stend að hluta til við gagnrýni á orðalag í ákveðnu samhengi í ræðu hæstv. ráðherra. Ég tel það ekki alveg skynsamlega framsetningu sem þar er að gefa til kynna að okkur þyki sú almenna þróun ekki hagstæð að umhverfismál og sjávarútvegsmál fléttist meira saman. Ég held að það sé gott og muni í framtíðinni skila sér einmitt fyrir þær nýtingarþjóðir sem standa með ábyrgum hætti að málum. Það er verkefnið sem við stöndum frammi fyrir.
Ég er sammála hæstv. utanrrh. Ég er nýtingarsinni en ekki friðunarsinni. En ég er um leið umhverfisverndarsinni og lít á það sem ógæfu og slys hvernig umhverfisverndarsamtökum, sem eru að uppistöðu til velviljuð, hefur lent saman við þjóðir eins og t.d. Grænlendinga sem nýta náttúruna í fullkomnu jafnvægi og hafa jafnvel gert um árþúsundaskeið. Það er sorgleg ógæfa. Reyndar skulum við líka láta menn njóta þess að t.d. Greenpeace hefur beðist afsökunar á framkomu sinni við Grænlendinga og þeim mistökum sem þeir þó nú viðurkenna að þeir gerðu á sínum tíma með árásunum á Grænlendinga og selveiðar þeirra.
Ég held að það væri mjög mikið framfaraspor ef við næðum því að leiða þessa aðila af villu síns vegar, þar sem þeir fara villir vegar, þ.e. í svona blindri friðunaráráttu gagnvart nýtingu sem á fullan rétt á sér og er sjálfbær. Það hlýtur að vera verkefnið að eyða þeim misskilningi. Við erum alveg tilbúnir til að eiga þessa aðila sem samherja þegar þeir eru að berjast gegn mengun hafsins og ég sé meira að segja að hæstv. ráðherra vitnar í skýrslur frá sumum þessara samtaka þegar það hentar og þau eru að hæla okkar fiskveiðistjórn.