Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Þótt að það standi í upphafi bókunarinnar að við staðfestum þann vilja sem er í varnarsamningnum þá dregur það í engu úr gildi hans. Hér er ekki um neinn nýjan varnarsamning að ræða. Þetta er bókun. Það heitir ekki einu sinni samningur. Það heitir ekki ,,agreement``. Það heitir ,,agreed minute``. Þetta er því mikilvægur skilningur milli þjóðanna en þetta er ekki neinn nýr varnarsamningur.
Að því er viðræður varðar þá erum við sammála um það, við og Bandaríkjamenn, að þessar viðræður fari fram tímanlega. Þær eru ekki hafnar. Við höfum sagt að við þurfum að endurmeta varnarþörf Íslands og þann viðbúnað sem hér þarf að vera og það er fyrst eftir slíkan vandaðan undirbúning að við teljum okkur tilbúna til þeirra viðræðna. Það verður a.m.k. ekki fyrr en einhvern tíma síðla á næsta ári og hugsanlega á árinu 2000.
Við höfum hins vegar sagt að við viljum halda þeim varnarmætti sem hér er í öllum aðalatriðum. Við teljum flugsveitina nauðsynlega, að það sé nauðsynlegt að hún sé hér vegna öryggis Íslands, sem þýðir þá líka að hér verði björgunarsveit, þyrlur og björgunarflugvél. Það er því engin breyting af okkar hálfu í sambandi við það. Og við höfum ekki orðið varir við neina breytingu af hálfu bandarískra stjórnvalda. Það fréttist oft eins og gengur og gerist að þeir séu til innan Bandaríkjahers sem telji nauðsynlegt að gera þarna breytingar á. En það er skilningur sem ekki hefur komið fram af hálfu talsmanna utanríkisráðuneytisins í Washington.