Flutningur starfa fyrir Íbúðalánasjóð til Sauðárkróks

Fimmtudaginn 05. nóvember 1998, kl. 17:34:57 (999)

1998-11-05 17:34:57# 123. lþ. 21.92 fundur 96#B flutningur starfa fyrir Íbúðalánasjóð til Sauðárkróks# (umræður utan dagskrár), HjálmJ
[prenta uppsett í dálka] 21. fundur, 123. lþ.

[17:34]

Hjálmar Jónsson:

Herra forseti. Mig langar rétt að benda á það í leiðinni að það þarf engar áhyggjur að hafa af störfum hér á Reykjavíkursvæðinu, þar sem kappnóg vinnuframboð er. Út koma heilu blöðin af Morgunblaðinu þar sem auglýst er eftir fólki í vinnu, skrifstofustörf og hvað eina, bankastörf. Til hvers að hafa áhyggjur af atvinnumálum á þessu svæði? Það eru allt önnur svæði á landinu sem hafa liðið fyrir skort á atvinnu.

Því skulum við fagna því að hægt sé að deila svona fyrirtækjum eða stofnunum út um landið eins og nú er verið að gera.