Framkvæmdir við Reykjavíkurflugvöll

Mánudaginn 16. nóvember 1998, kl. 15:12:52 (1088)

1998-11-16 15:12:52# 123. lþ. 24.1 fundur 103#B framkvæmdir við Reykjavíkurflugvöll# (óundirbúin fsp.), samgrh.
[prenta uppsett í dálka] 24. fundur, 123. lþ.

[15:12]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal):

Herra forseti. Ég er sammála hv. þm. um að nauðsynlegt er að gera sér grein fyrir því hvernig hægt væri að endurbyggja Reykjavíkurflugvöll. Það mál er í lokavinnslu hjá Flugmálastjórn og ég geri mér vonir um að tillögur flugmálastjóra geti legið fyrir annaðhvort í þessari viku eða hinni næstu.