Framkvæmdir við Reykjavíkurflugvöll

Mánudaginn 16. nóvember 1998, kl. 15:13:23 (1089)

1998-11-16 15:13:23# 123. lþ. 24.1 fundur 103#B framkvæmdir við Reykjavíkurflugvöll# (óundirbúin fsp.), GHall
[prenta uppsett í dálka] 24. fundur, 123. lþ.

[15:13]

Guðmundur Hallvarðsson:

Herra forseti. Ég þakka þetta stutta svar. Ég vona að jafnstutt sé í framkvæmdir við Reykjavíkurflugvöll og svar samgrh. var. Ég skil það svo að það liggi nokkuð ljóst fyrir með fjármögnun, hvernig verði farið með þau mál.

Ég lít þá líka svo á að snemma á næsta ári verði hafist handa við Reykjavíkurflugvöll. Ég vona að skilningur minn sé réttur. Ef svo er ekki vænti ég þess að hæstv. samgrh. leiðrétti mig.