Skaðabótalög

Mánudaginn 16. nóvember 1998, kl. 16:16:49 (1103)

1998-11-16 16:16:49# 123. lþ. 24.25 fundur 183. mál: #A skaðabótalög# frv., dómsmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 24. fundur, 123. lþ.

[16:16]

Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) (andsvar):

Herra forseti. Varðandi spurningu um það hvort nefndin geti kallað til sín óháðan sérfræðing geri ég fyrir mitt leyti engar athugasemdir við það. Það er í ákvörðunarvaldi nefndarinnar.