Ögmundur Jónasson:
Hæstv. forseti. Ég hef óskað eftir umræðu utan dagskrár til að ræða málefni embættis lögreglustjórans í Reykjavík. Ég hef áður vakið máls á þessu á Alþingi og það í byrjun þessa mánaðar en að undanförnu hefur framvindan orðið með þeim hætti að ég sé ástæðu til að taka málið upp nú utan dagskrár.
Efnisatriðin eru í stuttu máli þessi: Á skipulagi lögreglunnar í landinu voru gerðar miklar breytingar með lögreglulögum árið 1996 og komu þessar breytingar til framkvæmda á miðju ári 1997. Í tengslum við þetta og vegna annarra mála sem upp hafa komið hefur þessi hluti stjórnsýslunnar verið undir smásjá. Hæstv. dómsmrh. skýrði frá því í byrjun febrúar að Ríkisendurskoðun hefði að hans undirlagi verið falið að gera stjórnsýsluúttekt á lögreglustjóraembættinu í Reykjavík og þetta þóttu almennt ágæt vinnubrögð, enda heyrir Ríkisendurskoðun beint undir Alþingi og eðlilegt að þeirri stofnun sé falið verkefni af þessu tagi.
Nú hefur hins vegar komið í ljós að á sama tíma og unnið hefur verið að þessari úttekt á vegum Ríkisendurskoðunar er verkfræðistofa Stefáns Ólafssonar, VSÓ sem svo er nefnd, að vinna að annarri úttekt. Sú úttekt virðist mér hafa verið unnin með handarbakinu því önnur eins handarbaksvinnubrögð hef ég sjaldan séð. En þá fyrst tekur út yfir allan þjófabálk þegar í ljós kemur að dómsmrn. hefur falið yfirmönnum lögreglunnar að framfylgja tillögum VSÓ þó þær séu mjög umdeildar, vanhugsaðar og síðast en ekki síst stangist á við landslög.
Á vegum dómsmrn. hefur verið skipuð nefnd sem samanstendur af ríkislögreglustjóra, lögreglustjóranum í Reykjavík, varalögreglustjóra og fulltrúa dómsmrn. til að framfylgja tillögum og hugmundum VSÓ, ekki til að gaumgæfa þær og skoða, ekki til að hafa til hliðsjónar og samanburðar við niðurstöðu Ríkisendurskoðunar, en sú stofnun sendi frá sér áfangaskýrslu 8. október sl., heldur til að framfylgja niðurstöðum VSÓ, enda var strax hafist handa með miklum gassagangi og fundahöldum kvölds og morgna og um miðjan dag til þess að keyra málin í gegn að því er virðist til að koma í veg fyrir umræður.
Þetta eru þungar ásakanir. Það eru þung orð að halda því fram að dómsmrh. landsins hafi falið æðstu mönnum lögreglunnar að fremja lögbrot en nú bið ég hv. alþm. og aðra sem til heyra að hlusta vel. Í 6. gr. lögreglulaga segir orðrétt, með leyfi forseta:
,,Lögreglustjórar fara með stjórn lögregluliðs, hver í sínu umdæmi. Þeir annast daglega stjórn og rekstur lögreglunnar í umdæmi sínu og bera ábyrgð á framkvæmd lögreglustarfa innan þess.``
En hvað er það sem VSÓ leggur til? VSÓ leggur til að lögreglustjórinn verði sviptur mannaforráðum sem honum þó eru ákvörðuð í tilvitnaðri lagagrein og eru tillögur VSÓ settar fram með eftirfarandi hætti. Í skýrslu VSÓ segir um stjórnskipulega stöðu lögreglustjóra:
,,Yfirmaður: ríkislögreglustjóri. Staðgengill: vara\-lög\-reglu\-stjóri. Undirmenn: varalögreglustjóri og ritarar á skrifstofu lögreglustjóra.``
Lögreglustjóri er sem sagt titlaður yfirmaður ritara á skrifstofu sinni en það er þó einn hængur á því varalögreglustjóra er falin dagleg umsjón með skrifstofu lögreglustjóra. Með öðrum orðum, þótt lögreglustjóri sé yfirmaður ritaranna, þá á varalögreglustjóri að hafa umsjón og eftirlit með þeim.
En hverjir heyra undir verkstjórn varalögreglustjóra? Það eru, og ég vitna í skýrsluna, með leyfi forseta: ,,Undirmenn, yfirlögregluþjónn, saksóknari og framkvæmdarstjóri sem og allir undirmenn þeirra, yfirmaður skýrsluskrárdeildar, starfsmannastjóri, lögfræðingur og ritarar á skrifstofu lögreglustjóra.``
Lögreglustjóri á samkvæmt verklýsingunni að vera fulltrúi embættisins út á við en varalögreglustjórinn á hins vegar að hafa yfirumsjón með almannatengslum embættisins og svo vitnað sé orðrétt til skýrslunnar, með leyfi forseta, þá semur hann ,,reglur varðandi samskipti við fjölmiðla og sér til þess að þeim sé framfylgt.``
Skilur fyrr en skellur í tönnum. Lögreglustjórinn má koma fram út á við en samkvæmt reglum sem varalögreglustjóri setur.
Ég hef grennslast fyrir um þetta mál en innan lögreglunnar eru menn varfærnir. Þó er ljóst að mikil óánægja er með framvindu mála, enda hafa samtök lögreglumanna ekki legið á skoðunum sínum. Jónas Magnússon, formaður Landssambands lögreglumanna, hefur gagnrýnt þessi vinnubrögð harðlega og í viðtali við DV ekki alls fyrir löngu segir hann orðrétt, með leyfi forseta:
,,Lögreglan í landinu gekk í gegnum eina mestu skipulagsbreytingu sem um getur fyrir ári þegar embætti ríkislögreglustjóra var stofnað. Í framhaldi af því átti sér stað mikil endurskipulagning lögreglunnar í Reykjavík. Á sama tíma gekk embættið í gegnum miklar hremmingar vegna skipbrots sem skapaðist af umræðum um starfsemi fíkniefnadeildarinnar. Þetta kallaði líka á mikla endurskipulagningu um bætta meðferð fíkniefna og vörslu á skýrslum. Hluti þess var að gera boðleiðir skýrari og yfirmenn hefðu góða yfirsýn með sínum sviðum. Þetta er búið að framkvæma en með þeim breytingum sem nú er rætt um með mikilli fækkun í yfirstjórninni óttumst við að of mikið álag færist á einstaka menn og allt færist í fyrra horf aftur, ef ekki verra.`` (Forseti hringir.)
Með leyfi hæstv. forseta, þá er ég að ljúka máli mínu. Í ljósi þess að fjölmargar staðhæfingar og reyndar flestar aðfinnslur sem fram koma í skýrslu VSÓ eru rangar hljóta menn að velta fyrir sér hvort skýrslan sé samin með fyrir fram gefnar niðurstöður í huga. Þessi vinnubrögð eru á ábyrgð hæstv. dómsmrh. En er allt sem hér hefur verið rakið með vitund hans og hvað hyggst hann gera í þessu alvarlega máli?