Arnbjörg Sveinsdóttir:
Hæstv. forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda og ráðherra fyrir svörin. Það er rétt sem fram kom hjá ráðherra að bylting hefur orðið í fjarkennslumálum að undanförnu. Ég vil í þessu samhengi nefna hlut fræðslunets Austurlands en tilgangur þess er m.a. að hlutast til um að boðið verði upp á háskólanám á Austurlandi með m.a. fjarfundabúnaði, og í öðru lagi að efla símenntun og fullorðinsfræðslu á Austurlandi.
Fræðslunetið er tengiliður á milli háskólastofnana, fyrirtækja og einstaklinga á Austurlandi. Það er einnig tengiliður á milli Austfirðinga og annarra menntastofnana sem hafa upp á styttra eða lengra nám að bjóða. Fræðslunetið kynnir, skipuleggur og miðlar námi til íbúa Austurlands. Ég tel mjög mikilvægt að sá kynningarþáttur sé til staðar til þess að fólk átti sig á þeim miklu möguleikum sem fjarkennslan hefur upp á að bjóða.