Málefni Stofnfisks

Miðvikudaginn 02. desember 1998, kl. 13:26:56 (1469)

1998-12-02 13:26:56# 123. lþ. 30.91 fundur 127#B málefni Stofnfisks# (umræður utan dagskrár), GE
[prenta uppsett í dálka] 30. fundur, 123. lþ.

[13:26]

Gísli S. Einarsson:

Herra forseti. Hv. þm. Svavar Gestsson spurði eftir því hvort innt hefði verið svara um þetta mál í fjárln. Það var gert. Það var beðið um að svara greinilega með gögnum hvers vegna ætlunin væri að selja, hver staða málsins væri og hvenær ætlunin væri að þetta færi fram. Spurt var um fjárhagslegan ávinning. Það eina sem kom sem svar frá ráðuneytinu voru drög að samningi um Stofnfisk. Punktur og basta.

Þetta er gersamlega ólíðandi og af því að það var gefið tilefni til að svara þessu, þá geri ég það hér með.