Lögskráning sjómanna

Miðvikudaginn 02. desember 1998, kl. 14:12:30 (1489)

1998-12-02 14:12:30# 123. lþ. 30.5 fundur 209. mál: #A lögskráning sjómanna# fsp. (til munnl.) frá samgrh., KHG
[prenta uppsett í dálka] 30. fundur, 123. lþ.

[14:12]

Kristinn H. Gunnarsson:

Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. samgrh. fyrir greinargóð svör og fagna yfirlýsingu hans um skipun nefndar á næstu dögum til þess að endurskoða þetta ákvæði í umræddum lögum. Ég hvet ráðherrann til þess að hraða þeirri endurskoðun þannig að nást megi það markmið sem hann gat um að frv. yrði lagt fram síðar í vetur.