Verðmunur á leigulínum um ljósleiðara

Miðvikudaginn 02. desember 1998, kl. 14:35:17 (1498)

1998-12-02 14:35:17# 123. lþ. 30.7 fundur 202. mál: #A verðmunur á leigulínum um ljósleiðara# fsp. (til munnl.) frá samgrh., EgJ
[prenta uppsett í dálka] 30. fundur, 123. lþ.

[14:35]

Egill Jónsson:

Virðulegi forseti. Auðvitað fagna ég því að þessi fyrirspurn skuli vera komin fram, hún er gott innlegg í það að rifja upp þetta mál. Ég vil hins vegar benda skýrt á að í þeirri till. til þál. um byggðamál sem fyrir liggur er kveðið á um að fullur jöfnuður skuli ríkja í þessum efnum þannig að um leið og við höfum afgreitt þá tillögu með þeim texta sem fyrir liggur kemur jöfnuður á alla þessa þjónustu.