Fyrirspyrjandi (Guðný Guðbjörnsdóttir):
Virðulegi forseti. Í framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar um aðgerðir til að ná fram jafnrétti kynjanna sem Alþingi samþykkti á síðasta þingi er í kafla II sérstaklega fjallað um verkefni ríkisstjórnarinnar sem ekki varðaði sérstök ráðuneyti. Þar er fjallað sérstaklega um mikilvægi þess að jafnréttismál séu samþætt allri opinberri stefnumörkun og ákvarðanatöku. Í því samhengi eru fjögur verkefni sérstaklega tilgreind.
Í ljósi þess að fyrri framkvæmdaáætlanir hafa yfirleitt ekki komist í framkvæmd nema að hluta þætti mér fróðlegt að heyra hvort þau mikilvægu verkefni sem hér um ræðir séu komin á framkvæmdastig og hvort nægilegir fjármunir séu ætlaðir til þeirra í ljósi þess að samkvæmt fjárlagafrv. virðist ætlunin ekki að verja of miklu fjármagni til jafnréttismála. Samkvæmt mati Fjárlagaskrifstofunnar, þegar framkvæmdaáætlunin var samþykkt, var gert ráð fyrir að öll framkvæmdaáætlunin kostaði 7--10 millj., þ.e. frá og með árinu 1998--2001. Af þessu tilefni hef ég lagt fram eftirfarandi fyrirspurn til hæstv. félmrh. á þskj. 301:
,,1. Er hafin framkvæmd á eftirfarandi verkefnum ríkisstjórnarinnar, sbr. II. kafla framkvæmdaáætlunar til fjögurra ára til að ná fram jafnrétti kynjanna:
a. að í öllum tölfræðilegum samantektum og skýrslum verði upplýsingar greindar eftir kyni,
b. að kannað verði hvort opinber stefnumörkun taki mið af jafnrétti kynjanna,
c. að stuðlað verði sérstaklega að jafnrétti hjá ríkisstofnunum?
2. Ef svo er, hvað hefur þegar verið gert? Ef svo er ekki, hvenær mun framkvæmdin hefjast? Hve mikið fé er ætlað í hvert verkefni á næsta ári?``