Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):
Herra forseti. Það hefur alltaf legið fyrir að ekki yrði farið í þetta verkefni strax. Það var tilgreint í þingskjölum á sínum tíma og tímasett á síðari tveimur árum áætlunarinnar. Ég vænti þess hins vegar að farið verði í verkefnið á tilsettum tíma. Ég get tekið undir með hv. fyrirspyrjanda að þarna er um mikilvægan fróðleik að ræða sem sjálfsagt er að reyna að vanda vinnubrögðin við að afla.
Varðandi það sem hv. 15. þm. Reykv. sagði þá get ég tekið undir það. Þetta er t.d. mjög sláandi í landbúnaði. Búin eru oftast á kennitölu bóndans og það eru hlutir sem við þurfum að laga. Vera kann að ekki hafi verið vakin næg athygli á því að þetta sé í ólagi hjá okkur. Vera kann að konur hafi ekki borið sig eftir þessu, þ.e. að nöfn þeirra og kennitölur kæmu fram með eðlilegum hætti. En þetta er atriði sem þarf að bæta úr, eitt af mörgum.