Tilkynningarskylda íslenskra skipa

Fimmtudaginn 03. desember 1998, kl. 10:36:33 (1530)

1998-12-03 10:36:33# 123. lþ. 32.1 fundur 260. mál: #A tilkynningarskylda íslenskra skipa# frv., ÁRJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 32. fundur, 123. lþ.

[10:36]

Ásta R. Jóhannesdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég hefði gjarnan viljað fá svör við því hjá hæstv. ráðherra hvað lögsetning þessa frv. hefur í för með sér fyrir strandstöðvar, hvort strandstöðvum muni fækka ef frv. verður að lögum og einnig þá hversu mikið, ef strandstöðvum fækkar á annað borð. Getur hæstv. ráðherra kannski farið aðeins ítarlegar í það mál?