Skipulag á fólksflutningum með hópferðabifreiðum

Fimmtudaginn 03. desember 1998, kl. 12:31:15 (1563)

1998-12-03 12:31:15# 123. lþ. 32.3 fundur 282. mál: #A skipulag á fólksflutningum með hópferðabifreiðum# frv., samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 32. fundur, 123. lþ.

[12:31]

Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar):

Herra forseti. Það er ekkert við því að segja þótt hv. þm. vilji skilgreina orðið ,,löggjöf`` þröngt en við vitum báðir að hér er um að ræða það mat samgrn., og þar með mitt mat, að ekki hafi þurft lagaheimild til að staðfesta reglugerðina þannig að hún verði hluti af þeim réttarreglum sem gilda hér á landi. Það er kjarni málsins.