Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson):
Herra forseti. Fyrst vil ég leiðrétta það sem hv. 9. þm. Reykv. segir af tíðindum um afstöðu manna í þingflokki Sjálfstfl. Hv. þm. situr ekki þá fundi og veit því nákvæmlega ekkert um það hvernig skoðanir manna kunna að skiptast í þeim efnum. En um þetta sérstaka mál get ég fullyrt að þar er enginn sá ágreiningur uppi sem hv. þm. lýsti og orð hans því algerlega marklaus um þetta atriði, og ekki í fyrsta skipti.
Hitt atriðið sem hv. þm. vék að þegar hann nefndi tiltekin efnisatriði í drögum að frv. um vernd persónuupplýsinga, þar sem hann vék að skilgreiningum á persónuvernd. Þetta efnisatriði skiptir að sjálfsögðu engu máli varðandi afgreiðslu gagnagrunnsfrv. vegna þess að þau atriði sem máli skipta þar og lúta að persónuvernd eru um hvort kröfum um persónuvernd er fullnægt. Það liggur fyrir að kröfum þar um er fullnægt og kemur skilgreiningum á hugtökum ekkert við. Hv. þm. hefur því með ræðu sinni útskýrt það sjálfur að engin þörf er á að tengja þessi mál saman miðað við hans eigin málflutning.