Pétur H. Blöndal:
Herra forseti. Í brtt. meiri hluta hv. efh.- og viðskn. er gert ráð fyrir að aðilar tilnefni stjórn Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda sem hafa engin tengsl við félaga sjóðsins. Hér er lagt til að sjóðfélagar Söfnunarsjóðsins kjósi stjórn sjóðsins sjálfir og er það í samræmi við þá lífssýn sem margt fólk hefur að fullveðja einstaklingar eigi og séu færir um að taka ákvarðanir um helstu mál er þá varðar. Þær breytingar sem eru lagðar til taka mið af þessari trú á einstaklinginn.