Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Mánudaginn 07. desember 1998, kl. 15:18:46 (1723)

1998-12-07 15:18:46# 123. lþ. 34.7 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 34. fundur, 123. lþ.

[15:18]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Vegna þessara orða hv. þm. liggur það fyrir að hæstv. forsrh. hefur fjarvistarleyfi. Forseta er kunnugt um að hæstv. dómsmrh. hafa verið borin þessi boð. Hann er hins vegar upptekinn á fundi í andartakinu en forseti væntir þess að hann komi til fundarins þegar hann hefur tök á.