Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Mánudaginn 07. desember 1998, kl. 15:38:11 (1737)

1998-12-07 15:38:11# 123. lþ. 34.7 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 34. fundur, 123. lþ.

[15:38]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Nú verður forseti að gera athugasemdir. Hér er verið að ræða fundarstjórn forseta. Það eru 13 hv. þm. á mælendaskrá. Það er ótakmarkaður ræðutími þannig að möguleikar til efnislegrar umræðu eru nægir. Ég hvet því þá hv. þm. sem vilja raunverulega ræða fundarstjórn forseta til að gera það. (ÖJ: Gögnin liggja ekki fyrir. Upplýsingar liggja ekki fyrir.) Óska fleiri hv. þm. eftir því? Svo er ekki. Þessari umræðu um fundarstjórn forseta er lokið.