Ögmundur Jónasson (andsvar):
Hæstv. forseti. Það er rétt að Íslendingar hafa borið virðingu fyrir vísindunum og vísindamönnum sínum. Fyrir íslenskum vísindamönnum hefur verið borin virðing á erlendri grundu. Ég óttast að allt þetta sé að brotna niður. Trúnaðartraustinu milli þjóðarinnar, sérstaklega þeirra sem sjúkir eru, og lækna og vísindamanna er stefnt í voða. Og það sem meira er, trúnaðartrausti íslenskra vísindamanna á erlendri grundu er stefnt í voða.
Mér finnst hv. þm. Kristján Pálsson alls ekki gera sér grein fyrir að á þessum málum er að verða grundvallarmunur sem felst í því að gera þekkinguna, upplýsingarnar um heilsufar, að verslunarvöru. Í því felst ekki stigsmunur heldur eðlismunur. Þegar við förum inn í þann heim þurfum við að skoða allar afleiðingar. Við þurfum að skoða siðfræðilegar hliðar málsins, það sem lýtur að frjálsum rannsóknum og framþróun þekkingarinnar og sambandið milli sjúklinga og samtaka þeirra við vísinda- og læknasamfélagið. Öllu þessu er stefnt í voða og mér finnst sorglegt að Íslendingar sem hafa verið mjög jákvæðir í garð lækna sinna og vísindamanna eru nú margir, ekki allir og kannski minni hluti, fullir efasemda. Þess vegna segi ég að þessi umræða og frv., ég tala nú ekki um ef það verður að lögum, stefni friðnum í voða. Ég veit reyndar að þá er friðurinn úti.