Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Þriðjudaginn 08. desember 1998, kl. 22:46:43 (1817)

1998-12-08 22:46:43# 123. lþ. 35.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, LMR (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 35. fundur, 123. lþ.

[22:46]

Lára Margrét Ragnarsdóttir (andsvar):

Ég vil bara nefna, hæstv. forseti, og ítreka að Krabbameinsfélagið og sú vinna sem þar fer fram er og hefur verið hluti af íslensku heilbrigðiskerfi. Nú erum við að ræða um nýtt fyrirkomulag sem í raun og veru er viðskiptasamband íslenska heilbrigðiskerfisins við það fyrirtæki sem tekur að sér þessar rannsóknir.