Hjörleifur Guttormsson (andsvar):
Virðulegur forseti. Ég fæ ekki alveg skilið að það að upplýsingar liggja í sjúkraskrá, jafnvel þó safnað væri nú með samþykki sjúklinga og undir forræði siðanefnda, sé sambærilegt við samsöfnun upplýsinga í miðlægan gagnagrunn og samkeyrslu við aðra gagnabanka á erfðafræði- og ættfræðisviði. Mér finnst því staðhæfing hv. þm. mjög út í hött, svo ég orði það nú beint.
En ég vildi nefna annað sem ég kom ekki að áðan sem er það sem hv. þm. vék að, blessuninni fyrir læknavísindin sem ætti að fást út úr grunninum, lina þjáningar o.s.frv., lækna gigt, nefndi þingmaðurinn. Nú ætla ég ekkert að draga í efa að það megi nota tæki sem þetta til ýmissa þátta til þess að auka þekkingu og ráða við sjúkdóma en það er ekki sannað að menn nái lengra með miðlægum gagnagrunni en með því að beita dreifðum gagnagrunnum og samkeyra það skipulega ef nauðsyn þætti á að leggja saman þekkingu á fleiru en einu. Það liggur ekki fyrir.
Allur áróður sem hefur birst um þetta að undanförnu og er kominn frá væntanlegum rekstrarleyfishafa er mjög fjarstæðukenndur og hefur sýnt sig að vera það. Ég hvet hv. þm. til að lesa eitt af mörgum ágætum dreifibréfum Mannverndar, ég held það sé það síðasta sem barst okkur þar sem farið er yfir þær stórkostlegu niðurstöður varðandi MS-genið sem átti að hafa fundist og legslímuflakk, sem einnig var komin lausn á að því er staðhæft var. Við bíðum bara eftir því þessa dagana að nýjar töfralausnir komi frá væntanlegum rekstrarleyfishafa því að það er alveg augljóst að staðhæfingar af þessum toga eru til komnar til þess að hafa áhrif á afgreiðslu þess máls sem er til umræðu.