Formennska í sjávarútvegsnefnd

Miðvikudaginn 09. desember 1998, kl. 13:38:59 (1847)

1998-12-09 13:38:59# 123. lþ. 36.91 fundur 151#B formennska í sjávarútvegsnefnd# (aths. um störf þingsins), Forseti GÁ
[prenta uppsett í dálka] 36. fundur, 123. lþ.

[13:38]

Forseti (Guðni Ágústsson):

Sjálfsagt eru mörg mál sem þarf að taka upp og hægt er að ná samkomulagi um en í fyrsta lagi þarf vilja til þess. Það stendur þannig að á haustin er kjörið í nefndir þingsins og nefndirnar velja sér síðan forustumenn og í huga forseta er það auðvitað fyrst og fremst nefndarinnar að gera út um það.