Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 12:39:57 (1927)

1998-12-10 12:39:57# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, KÁ (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[12:39]

Kristín Ástgeirsdóttir (um fundarstjórn):

Hæstv. forseti. Svo illa vill til að í salnum er ekki staddur einn einasti fulltrúi meiri hlutans í hv. heilbr.- og trn. til að upplýsa hvort meiningin er að draga brtt. aftur til 3. umr. Ég vil taka undir það með hv. þm. að hér er búið að boða veigamiklar frekari breytingar þannig að mér fyndist eðlilegt að við hv. þingmenn gætum þá tekið afstöðu til þeirra í heild og að við höfum yfirsýn yfir málið við 3. umr. ef ekki er vilji til þess að fresta þessari umræðu og að málið verði tekið til skoðunar í nefndinni aftur áður en 2. umr. lýkur.