Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 12:58:40 (1934)

1998-12-10 12:58:40# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[12:58]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við erum frumkvöðlar á þessu sviði. Í þessum grunni eru ópersónugreinanlegar upplýsingar. Það hefur margsinnis komið fram. Þegar kemur að erfðaupplýsingum þarf upplýst samþykki. Það þarf upplýst samþykki fyrir erfðaupplýsingum sem er í öðrum grunni. Það held ég að hv. þm. hljóti að vita.