Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 13:05:22 (1940)

1998-12-10 13:05:22# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, heilbrrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[13:05]

Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það hefur margsinnis komið fram í umræðunni hér að ekki sé um einhverja grundvallarbreytingu að ræða frá því sem ég nefndi hér áðan og hv. þm. nefndi einnig. Það er verið að tala um tæknilegar tengingar og reglur þar að lútandi. Það er eina sem um er rætt.