Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 14:04:15 (1956)

1998-12-10 14:04:15# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, MF (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[14:04]

Margrét Frímannsdóttir (andsvar):

Virðulegi forseti. Ef það álit liggur fyrir frá Brussel eða frá embættismönnum sem fjalla um þennan sérstaka þátt, var því þá dreift í hv. heilbr.- og trn.? Þaðan hafa komið fram kröfur um að þetta yrði sérstaklega skoðað og eftir því sem hefur komið fram í umræðunni þá var því hafnað. Eru þá einhver gögn um þetta í ráðuneytinu sem ekki liggja fyrir hjá heilbr.- og trn.?