Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):
Herra forseti. Ég held að í bréfi Vinnuveitendasambandsins sé smámisskilningur um að skylt sé að vinnuveitandinn hafi þarna milligöngu. Menn geta hagnýtt sér þetta ákvæði án milligöngu vinnuveitandans ef þeir kjósa að sjá um þetta sjálfir, skila gögnum til skattsins og fá inn í álagningu sína þegar þar að kemur. Það er auðvitað lakari og tímafrekari kostur fyrir viðkomandi.
Ég deili þeim sjónarmiðum með hv. þm. að ekki sé ástæða til að leggja óþarfa umstang eða kostnað á atvinnureksturinn í sambandi við málið en ég held að of mikið sé úr því gert. Það er eins og hv. síðasti ræðumaður sagði, að þetta er lítið mál og ástæðulaust að gera svona mikið veður úr því. Auðvitað vitum við ekki hvort tilraunin sem hér á að gera heppnast. Við vitum heldur ekkert hvernig það heppnast að bjóða upp á 2% viðbótarlífeyrissparnað. Við vonum hins vegar að það gangi vel og munum reyna að leggja okkar af mörkum til að kynna þetta og reyna að sjá til þess að vel gangi að auka sparnaðinn í landinu.