Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar):
Herra forseti. Þetta var athyglisvert. Hv. þm. var spurður tveggja spurninga, í fyrsta lagi hvort batnandi efnahagsástand hefði leitt til þess að hagur einhverra sérstakra hefði versnað. Hann gat ekkert dæmi nefnt um það þrátt fyrir fullyrðingar sínar hér áðan. Hann var síðan spurður um hvort fátækt hefði aukist eins og hann hélt fram og hvar væru tölur um það. Þá vitnaði hann í einhverja óljósar skýrslur um mismun á milli Norðurlanda. Hann var ekkert spurður um það. Hann gat ekkert dæmi fært fram, máli sínu til staðfestingar. Þetta eru bara tvö lítil dæmi um málflutning hv. þm., dæmi sem við horfum mjög oft upp á af vörum þessa ágæta þingmanns.