Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1999

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 16:12:33 (2001)

1998-12-10 16:12:33# 123. lþ. 37.7 fundur 321. mál: #A ráðstafanir í ríkisfjármálum 1999# (breyting ýmissa laga) frv. 158/1998, JónK (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[16:12]

Jón Kristjánsson (andsvar):

Herra forseti. Það er rétt að skerðingin var tekin upp aftur en hins vegar var ákveðið í tíð núverandi ríkisstjórnar að létta rekstrarverkefnum af sjóðnum. Skerðingin er á og ég hef ekki borið á móti því og það má deila um það og við ræðum það auðvitað í fjárlagaumræðunni, um stöðu fatlaðra almennt. En ég kom hér upp til að halda þessum atriðum til haga í umræðunni, hvernig staðan er í raun og veru því umræðan hefur fram að þessu verið á þann veg í haust að þessa hefur ekki verið getið.