Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 17:38:51 (2012)

1998-12-10 17:38:51# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, GE (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[17:38]

Gísli S. Einarsson (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Varla er hægt að taka þetta mál til atkvæðagreiðslu þar sem t.d. við 4. gr. er sett fram slíkt málfarslegt klúður að ekki er hægt að skilja hvað átt er við með tillögu frá meiri hlutanum þannig að ég óska eftir því að skjalið verði lagfært og gert klárt til þess að hægt sé að skilja hvað er verið að biðja um að greiða atkvæði um.