Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 17:53:07 (2022)

1998-12-10 17:53:07# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, ÖJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[17:53]

Ögmundur Jónasson:

Hæstv. forseti. Hér er lagt til að vísa frv. ríkisstjórnarinnar um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði til endurskoðunar hjá þeirri sömu ríkisstjórn og flytur þetta frv. í umboði fyrirtækis sem er að hluta til í eigu bandarískra áhættufjárfesta og tryggingafélaga. Þar liggur eignarhaldið í dag. Hvar það verður á morgun veit hins vegar enginn, hugsanlega hjá sömu tryggingafyrirtækjum og sömu lyfjafyrirtækjum sem vísindamenn og læknar óttast að kunni að misnota íslenska þjóð í tilraunaskyni. Þetta frv. stríðir gegn alþjóðasáttmála og alþjóðasiðareglum vísindamanna og lækna.

Hæstv. forseti. Ég segi já við því að vísa þessu frv. til ríkisstjórnarinnar og helst alla leið til föðurhúsanna.