Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 18:01:02 (2026)

1998-12-10 18:01:02# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, ÖS (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[18:01]

Össur Skarphéðinsson (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Það hefur komið fram í umræðum að meiri hlutinn á hinu háa þingi hyggst gera verulegar breytingar á þessu frv. þannig að það frv. sem við munum greiða atkvæði um kann að verða --- því hefur verið lýst af meiri hlutanum --- talsvert frábrugðið því sem hér liggur fyrir og í ljósi þess höfum við í 1. minni hluta ákveðið að draga allar brtt. okkar sem liggja fyrir á þingskjali 417 til baka til 3. umr., til þess að það sé algerlega skýrt.