Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 18:02:52 (2028)

1998-12-10 18:02:52# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, GÁS (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[18:02]

Guðmundur Árni Stefánsson:

Virðulegi forseti. Því miður er það svo að þetta annars merka og spennandi mál sem hér er á ferð hefur verið eyðilagt. Upplegg af hálfu ríkisstjórnarinnar og hæstv. heilbrrh. er með slíkum endemum og satt að segja meðferð meiri hluta heilbr.- og trn. sömuleiðis að ekki er nokkur vegur að standa að samþykkt þessa frv. eins og það lítur út í andartakinu. Því segi ég nei.