Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 18:07:34 (2033)

1998-12-10 18:07:34# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, GGuðbj (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[18:07]

Guðný Guðbjörnsdóttir:

Herra forseti. Markmiðsgrein frv. hljómar í raun fallega og væri ásættanleg ef tryggt væri að heilsufarsupplýsingar væru ópersónugreinanlegar og ef ekki væri ætlunin að veita einum aðila einkaleyfi á starfrækslu grunnsins til tólf ára. Frv. stríðir auk þess gegn viðurkenndum siðareglum vísindasamfélagsins. Samhengi þessarar markmiðsgreinar er því óásættanlegt og því greiði ég ekki atkvæði.