Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 18:17:21 (2042)

1998-12-10 18:17:21# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, PHB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[18:17]

Pétur H. Blöndal:

Herra forseti. Hér er gert ráð fyrir að veita rekstrarleyfi og mun það verða mikil lyftistöng innlendum vísindum. Það mun auka ungu menntafólki bjartsýni og vísindafólk sér loksins möguleika á því að vinna hjá öðrum en opinberum aðilum og sætta sig við þau launakjör sem þar hafa verið í boði. Það fyllist bjartsýni og þetta frv. mun því auka frumkvæði þess.