Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 18:20:47 (2046)

1998-12-10 18:20:47# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, GGuðbj (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[18:20]

Guðný Guðbjörnsdóttir:

Herra forseti. Hér og í 5. gr. frv. er kveðið á um einkarétt sérleyfishafans til allt að 12 ára. Þessi ráðstöfun er á skjön við samkeppnisreglur EES-samningsins, heilbrigða samkeppni vísindasamfélagsins og stangast á við reglur um jafnræði og atvinnufrelsi. Þetta fyrirkomulag mun kalla á mikil málaferli. Ég greiði því atkvæði gegn báðum þessum greinum.