Gagnagrunnur á heilbrigðissviði

Fimmtudaginn 10. desember 1998, kl. 18:31:18 (2052)

1998-12-10 18:31:18# 123. lþ. 37.1 fundur 109. mál: #A gagnagrunnur á heilbrigðissviði# frv. 139/1998, ÖJ (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 37. fundur, 123. lþ.

[18:31]

Ögmundur Jónasson:

Hæstv. forseti. Hér er vísað til tölvunefndar. Menn segjast hafa slegið nokkra varnagla í frv. Siðanefnd vísindamanna á að gæta hagsmuna almennings og sjúklinga og jafnframt tölvunefnd. Báðir þessir aðilar hafa lýst yfir vantrausti á frv. og hafa sagt að Alþingi eigi að setja þeim skýrari starfsreglur, ella treysti þeir sér ekki til að vinna samkvæmt þessu frv. Ég vil vekja athygli á því að þeir sem eiga að gæta hagsmuna almennings og sjúklinga hafa varað Alþingi við því að samþykkja þetta frv. Við ætlum að treysta á dómgreind þeirra. Hlustum þá á orð þeirra núna.