Valgerður Sverrisdóttir (um fundarstjórn):
Hæstv. forseti. Ég get tekið undir með stjórnarandstöðunni hvað þetta varðar. Meiningin var að ræða fyrst og fremst fjárlög í dag. Reyndar vissi ég ekki af því fyrr en ég sá dagskrána að önnur mál hefðu verið tekin fram fyrir og þykir það síðra. Engu að síður, ef mögulegt hefði verið að koma þeim málum áfram án þess að um þau yrði mikil umræða, þá hefði það í sjálfu sér verið til bóta.
En ef, eins og hv. þm. Svavar Gestsson lét koma fram, þingmaður stjórnarflokks, ég skildi hann svo, hefur vakið upp umræðu sem gæti tekið langan tíma, þó það sé kannski ekki þingmaður sem ég ber mikla ábyrgð á, þá tel ég engu að síður vænlegra að fresta þessari umræðu en setja umræðuna um fjárlög í hættu og mælist þá til þess.