Afgreiðsla heilbr.- og trn. á frumvarpi um gagnagrunn

Föstudaginn 11. desember 1998, kl. 14:37:24 (2132)

1998-12-11 14:37:24# 123. lþ. 38.94 fundur 159#B afgreiðsla heilbr.- og trn. á frumvarpi um gagnagrunn# (um fundarstjórn), GGuðbj
[prenta uppsett í dálka] 38. fundur, 123. lþ.

[14:37]

Guðný Guðbjörnsdóttir:

Herra forseti. Frsm. minni hlutans í fjárln. hafði orð á því í morgun hversu fáir væru mættir til umræðunnar og hversu mikið virðingarleysi ríkti yfir fjárlagaumræðunni. Nú á að fara að bjóða þinginu upp á það að hafa fundi með formönnum þingflokka á meðan talsmaður minni hlutans í fjárln. flytur ræðu sína.

Ég mótmæli því harðlega og mæli með því og tek undir óskir í þá veru að gera fundarhlé nú og að þessi mál verði afgreidd áður en fjárlagaumræðan heldur áfram.

(Forseti (ÓE): Það verður tekið tillit til þeirra mótmæla að fundur með formönnum þingflokka verður ekki haldinn meðan einhver formaður þingflokks er í ræðustól.)