Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):
Herra forseti. Ég hafði hugsað mér að segja örfá orð vegna hinna almennu hugleiðinga þingmannsins um forsendur fjárlagafrv. og efnahagshorfur. Mér þótti vænt um að heyra að nokkur stefnubreyting hefði orðið hjá þingmanninum upp á síðkastið hvað opinber útgjöld og ríkissjóð varðar. Mér heyrist að við séum sammála um ýmsa höfuðdrætti í þeim efnum og um nauðsyn þess að reka ríkissjóð hallalaust og af fyllstu ábyrgð. Ég vænti stuðnings hans í þeim efnum.
Ég tek undir það með honum að í góðærinu eigi að búa í haginn fyrir það sem á eftir kann að koma. Það er nú gert í stórum stíl, t.d. með því að borga niður skuldir ríkissjóðs og létta þannig vaxtabyrði framtíðarinnar sem er geigvænleg. Á fyrri árum höfum við allir tekið þátt í að taka lán og auka á skulda- og vaxtabyrði ríkissjóðs. Ég fagna því að vera kominn með liðsmann í þessu efni. (Forseti hringir.) Ég hef víst ekki tíma til þess að fara út í fleiri atriði og vil undirstrika ánægju mína með þau sinnaskipti sem orðið hafa hjá hv. þm. og fyrrv. menntmrh.